Because things are the way they are, things will not stay the way they are.
Gulli sótti mig í vinnuna á föstudaginn svo við gætum haskað okkur sem fyrst útúr bænum. Haldið ekki að maðurinn hafa ekki mætt með Karen Millen poka sem innihélt goergius topp. Sem svona líka smellpassaði á mig. Hann er svo sætur og mikill smekkmaður þessi elska.
Við fórum í Bónus, Hagkaup og Ríkið á mettíma og brunuðum svo uppí Húsafell (viss nú ekki að það væri svona langt). Við tókum ca hálftíma í að keyra nokkra göngustíga, rispa bílin á trjám og næstum festast í polli, okkur til varnar þá var grenjandi rigning og rok. Bústaðurinn fannst þó fyrir rest
Viðar, Sigrún og Röggi komu örlítið seinna við vorum meira að segja búin að grilla og svona þegar þau mættu (þau sniðug).
Júlía mín, Íris og Ásta komu svo þegar við vorum að klára að borða. Þær stoppuðu þó aðeins of stutt en ákaflega indælt að þær skildu koma. Verða bara lengur næst þegar við förum.
Við létum nú ekki norð-austan slagveður koma í veg fyrir að við færum í pottinn. Þar sátum við í nokkra klukkutíma áður en við fórum inn að spila Trivjal, ekki besta hugmynd sem maður fær þegar búið er að súpa bjór og hvítvín í heitu vatni
Satt best að segja þá sofnaði ég frekar fljótlega, náði þó að hjálpa Gulla að vinna þau he he eða a.m.k fá 3 kökur fyrir sefnin.
Við skelltum okkur auðvitað strax í pottinn þegar við vöknuðum. Skola af okkur þynnkuna (það fer mikið minna fyrir henni í sveitinni).
Við ákváðum að skella okkur í göngutúr og sund þegar allir voru búnir að ná heilsunni aftur.
Það er HUGES trampólin í Húsafelli sem við þurftum að prufa. Vó hver stal jafnvægisskininu mínu, vinsamlegast skila því ,takk pennt. Ég datt strax og gat með naumindu staðið upp hoppað tvisvar og datt aftur.
Sundlauginn í Húsafelli er líka snilld við þroskaða fólkið ákváðum að skella okkur í rennibrautina,Gulli ákvað að bruna strax á eftir mér (ekki góð hugmynd) með þeim afleiðingum að hann skall með hausinn beint í hnakkan á mér. Við með rosa fínar kúlur á hausunum okkar.
Sjokkið við að lenda í ÍSköldu vatninu tók þó hugan af mesta sársaukanum. Hefði nú mátt vara mann við að þetta væri ekki upphitað.
Krakkarnir þurftu að bruna í bæinn eftir þessa stórskemmtilegu sundferð.
Við turtildúfurnar elduðum góðan mat um kvöldið og borðuðum rómantískan kvöldverð við kertaljós og drukkum ruðvín með. Ekkert smá rómó að vera svona in the middle of novere að knúsast og kúra.
Við eyddum sunnudeginum í kósíheit líka lásum bækur, horfðum á Breavehart og fórum auðvitað í pottinn. Það er svo stefnan að pannta bústaðinn sem fyrst aftur. Alveg nauðsinlegt að hlaða batteríin í sveitinni. Ekkert smá gott að hafa aðgang að svona sælureit.
Held ég hafi borðað á mig ca 5 kg um helgina, en það má í sumarbústað.
Stefnan er að byrja í gymminu núna í þessari eða næstu viku, ættla að verða svo spengileg. Hlakka mikið til að byrja maður hefur svo svaka gott af því að taka aðeins á því
Ég er með þá kenningu að KR hafi unnið Val í kvennaboltanum um helgina vegna þess að þær fóru í brúnkumeðferð og gerðu sig sætar fyrir leikinn.
Það er staðreind að þegar maður lítur vel út þá er sjálfstraustið meira og þá gegnur manni betur. Mér líður líka alltaf mikið betur þegar ég lít vel út.
Katla er búin að vera ungfrú óþæg undanfarið hún er núna ein heima í fyrsta skiptið. Ég verð að viðurkenna að það var mjög sárt að skilja hana eftir þessa elsku. Hún er svo mikið krútt þótt hún reyni alvarlega á þolrifinn stundum. Það er ekki annað hægt en að elska þetta grey.
If we had no winter, the spring would not be so pleasant: if we did not sometimes taste of adversity, prosperity would not be so welcome.
Ég er með í klukkleiknum, um að gera að hafa gaman af þessu![]()
Fjögur störf sem ég hef unnið.
- Skutla
- Móttökuritari
- Í Heilsustúdjói
- Auðvitað í fiskinum í denn:)
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á.
- Reality bites (ég veit hún er klassík)
- Dirty Dansing (nobody puts Baby in a corner) æ vildi að ég kynni að dans og syngja
- Threesome (líka klassík)
- Goodfellas (Gulli lét mig horfa á hana, hverjum hefði dottið í hug að mér fynndist hún skemmtileg)
Fjórir staðir sem ég hef átt heima á.
- Elskulegu Breiðdalsvík
- Keflavík (not so fun)
- Árbær (good times)
- Urðarstígnum Yndislega (þar sem ég bý núna ásamt Gulla og Kötlu og þarf að éta ofaní mig að ég vilji ekki búa í 101, Love it)
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi mest á.
- Law and order SVU
- FBI files
- Aircrash investingation (horfi með Gulla ferlega spennó og skerí as hell)
- Simpsons (verður bara ekki þreytt)
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.
- Svíþjóð
- Flórens, Ítalíu. (Bara næs)
- Þýskaland
- Tók sumarfrí í Eyjum í ár, svo gaman:) Allir að fara og vera fullir í 2 daga:)
Fjórar síður sem ég heimsæki daglega.
- Facebook.com
- Myspace.com
- Visir.is
- juliabirgis.bloggar.is og rúntin sem ég tek útfrá þeirri skemmtilegri síðu:)
Fjórir réttir sem mér finnst góðir.
- Kjúklingur og kjúklingur allt svo gott með kjúlla
- Kjötsúpa
- Svínakjötið sem Gulli gerir handa mér nammm
- Susi er núna það besta sem ég borða, við erum líka að verða ofur flink í að gera það.
Fjórar bækur sem ég les árlega (hef lesið oft)
- Harry Potter
- Beverly Gray bækurnar (ég í smá nostalgíu stuði núna)
- Rósu Bennet bækurnar ( er að safna þeim og Beverly)
- Mávahlátur (eitthvað við þá bók sem ég er yfir mig hrifn af ættli það sé ekki tíðarandinn)
Íris mín þú hefur verið klukkuð.
Að öðru. Ég að fara í bústaðinn eftir 2.5 klukkutíma, get ekki beðið. Hlakka svo til að flatmaga bara alla helgina hafa það næs burt frá öllu.
Sjokk sem ég fékk í gær djöfull. Ég var inná klósetti í vinnunni að þvo mér um hendurna og var litið í spegilinn og vitið hvað?. Ég er með HUGES þá meina ég HUGES nef, meira að segja kartöflunef. Afhverju hefur enginn sagt mér frá þessu ha??
Þegar ég fer að ryfja það upp þá sagði Jóhann Njáls mér þetta þegar ég var unglingur en kjánin ég hlustaði ekki á hana. Fyrirgefðu Jóhann hvar sem þú ert.
Ég þar svo að láta laga þetta get ekki látið sjá mig svona.
Hafiði haft þá tilfinningu þið séuð einhvernveginn alltaf að bregðast öllum og að þið getið ekki gert nóu mikið fyrir alla sem ykkur þykir vænt um.
Eru þið líka með nagandi samviskubit alltaf.
Þetta er að gera mig vitlausa
Ha ég nei það getur ekki verið.......... þetta sagði maður í síman í dag þegar ég bauð góðan dag.
Ég var í Byko í gær með Gulla. Við vorum á kassanum eitthvað að spjalla þegar ég rek augun í fyrirsögn utaná blaði um að einhver faró hafði átt 400 konur og 150 börn. Ég fór að pæla í því hvort það væri ekki frekar léleg nýting vitiði hvað fíflið sagði. " Hann vildi kannski ekki bara eiðileggja þær allar" HÁLVITI ég lamdi hann fast,þið megið líka
He he sko ég ákvað að koma með Gulla sögu spes fyrir Röggu mína
Eníhú ég fór og lét lappa uppá hárið á mér í gær, about time, nú er ég svona fullorðins ljóshærð með pínu skakkan topp sem ég get tekið frá þegar ég vil og enn já vinkonur enn að safna hári.
Staðfestan uppmáluð. Vík sko ekki frá þessu markmiði mínu. Borgaði offjár í einhvern hárkúr sem er til þess hannaður að lappa uppá skemmt hár (eins og mitt) og gera það skínandi af heilbrigði og flýta fyrir vexti í leiðinni. Þannig að dadadadammm ég verð öruglega komin með sítt um jólin ef ekki fyrr miðað við verðið á þessu helvíti. Af tillitsemi við Gullið þá lét ég hann ekkert vita fullt verð enda gæti hann fengið fyrir hjartað komin á þennan aldur og svona. Jahá ég er sko tillitsöm við minn mann.
í morgun var ég á tímastjórnunarnámskeiði. Mjög gagnlegt og gaman við fengum verkefni sem gengur útá það að skrifa niður 15 atriði sem við myndum vilja gera ef við fengjum 1 aukaklukkutíma á viku. Svo næstu 15 vikurnar þá gerum við eitt atriði á viku. Þannig að á næstu vikum er ég að t.d að fara að bjalla í ömmu og afa, fara í heilnudd, bjóða Gulla óvænt fínt út að borða og fara í búðir með Röggu. Svo eitthvað sé nefnt. Sniðug leið til að kenna manni að nýta tíman sinn betur og njóta þess sem gefur manni vellíðunartilfinningu í kroppin. Geriði þetta líka, það væri ofur gaman fá svona reynslu-gleðisögur.
Um hegina erum við Gullið búin að fá TM bústaðinn í Húsafelli. Vahá ég er svo spennt. Þeir sem vilja mega koma í heimsókn í kyrðina og rónna.
Hlakka svo til víííí.
Þarf að fara vinna það er víst ekki góð tímastjórnun að blogga í vinnunni
Lýtó eða???????????? ég veit það ekki.
Þessi kona er fædd 1940 og er kölluð kattarkonan eða The Bride of Wildenstein sem er að sjálfsögðu tilvísun í The Bride of Frankenstein. Sorgleg kona.
Þessi kona heitir Cindy Jackson og hún er fædd 1955. Mjög falleg og vel lukkuð. Ekki margir sem gera grín að henni. Hún heppin.
Samt pæling hvort þær séu svo ólíkar þegar upp er staði?
Þær hafa báðar eitt ómældum tíma hjá lýtalæknum til að spá, speglúra, sjúa, toga, fylla á og taka úr. Allt til að breita útliti sínu.
Að mínu mat hefur þeim báðum tekist vel upp því annari langar til að lýta út eins og köttur (sem hún jú sannarlega gerir).
Hinni langar að vera sæt og ungleg (sem hún er).
Þær virðast báðar lifa fyrir þetta. Þetta er það sem þær gera.
Ég er búin að vera að lesa yfir það er ég fynn um þær.
Önnur virðist hafa tapað sér eftir skilnað í kjölfar framhjáhalds.
Hin er fyrverandi listanemi sem átti þá ósk heitasta að vera ávalt ung og var að lokum einskonar strigi fyrir eigin listsköpun.
Þær virðast báðar stjórnast af hégóma.
Ég er alls ekki að taka neina afstöðu gengn lýtaaðgerðum ekki misskilja mig. Mér fynnst þær bara pínu merkilegar þessar tvær konur sem virðast bara lifa fyrir aðgerðirnar sínar og að sýna afraksturinn af þeim. Hvort sem þær vekja aðdáund eða hrylling.
Hvor haldið að eigi heimsmetið í lýtaaðgerðum??
Að vera eða ekki vera...........
Ég hef tekið þá ákvörðun "to be a men" so tu speek og taka þessari áskorun minna ástkæru vinkvenna og byrja að blogga aftur eftir nokkura ára hlé. Ég er svo sem í ágætis aðstöðu til þess þar sem ég er parkeruð fyrir framan tölvuna 8 tíma á dag. Við sjáum svo bara til hvort þetta verði fugl eða fiskur
Ég er nokkuð viss um að ég sé farin að breytast í einhvern furðufugl.
Ég Eva velvakandi er oftar en ekki farin að sofa fyrir ellefu á kvöldin oft mikið fyrr. Hvað í andskotanum er það (fyrirgefið orbragðið) þetta er svo ólíkt mér. Ég harðneita að trúa því að þetta sé aldurinn ónei ónei. Kannski er þetta félagsskapurinn við Gullið sem gerir þetta. Hann er voða hrifin af því að fara að kúra langt fyrir minn eðlilega háttatíma. Svo þegar hann er sofnaður þá hef ég ekki neitt að gera þannig að ég sofna gegn mínum vilja. Mér er farið að fynnast alltof mikill tími fara í þessa tímasóun... Maður upplyfir jú frekar lítið ef maður er alltaf sofandi.
Ég er að fara í heilsuátak á vegum TM. Þetta byrjar í alsherjar heilsufarsmælingu í næstu viku. Svo þarf maður að hreyfa sig á hverjum degi og borða hollan mat og halda matardagbók. Svo fær sá sem stendur sig best í hverri viku verðlaun. Gaman að þessu:)
Katla sér manni nú svo sem fyrir hreyfingu á hverjum degi. Þessi elska hún stækkar svo hratt og þarf alltaf meiri og meiri hreyfingu. Hún er samt eitthvað að miskilja þegar ég fer að hlaupa með hana þá hleypur hún ekki heldur hoppar frekar furðulega. Í gær á löbbuðum við til Júlíu og ákváðum á skokka til baka það gekk nú ekki betur en svo að hún datt og ég næstum ofaná hana. Klaufabárðarnir hvað?
Júlía hvernig set ég inn linka hérna, klór í haus, er svo ekki að fynna þetta?

