Hvað gerum við núna??
Nú er það svart. IMF er búið að setja okkur á hold og við fáum ekki lán annarsstaðar nema við fáum lánið frá þeim. Er þetta ekki hin sannkallaða patt staða (lærði sko svona skák mál þegar ég var í skák kennslunni hérna í denn, Unnur kann þetta líka)
Við sitjum uppi með mjög slappa stjórn sem virðist ekki vita neitt í sinn haus um gang mála né hvað skal til bragðs taka. Við kusum þetta fólk við eigum að geta rekið það líka og það skal takast.
Merkilegt að það koma upp ný spillingarmál á hverjum einasta degi og stjórnin segir ekki neitt. Hendir bara fram skítakommentum um skrílslæti til að við eyðum okkar tíma í að gagnrýna orð þeirra en ekki gjörðir eða réttara sagt aðgerðaleysi.
Ég er búin að senda öllum í stjórnarflokkunum meil þar sem ég krefst þess að þau segi af sér, hef ekki fengið eitt einasta svar. Frá mínu eigin starfsfólki! Þau eru jú í vinnu hjá mér og okkur öllum. Samt sýna þau fádæma mikinn hroka að láta eins og þessi kreppa sé þeirra einkamál og okkur komi þetta nú lítið við. Við séum bara með bölvaða frekju að heimta upplýsinga og svör um hvað sé í spilunum að gera í þessu.
Mér finnst eins og við séum stödd í einhverjum hvirfilbil sem rífur allt með sér sem er ekki kirfilega niður neglt. Hvar við endum er algjörlega óráðið..
Eníveijs ég er tiltölulega spræk. Er eins og flestir vita á smá krossgötum en ég er ekki mikið að stressa mig þessa dagana. Þetta kemur allt, það er líka svo mikið að gera við að fylgjast við kreppumálum að það kemst lítið annað að. Ég er reyndar svo sjúklega utan við mig og gleyminn að það nær ekki nokkurri átt. Eftir sturtu í gær þá var ég að setja kremin mín á mig og mér tókst að setja andlitskremið í hárið á mér og hárkremið í andlitið á mér voða huggó með fitugt hár og logsveið í andlitð. Úff það er allt eftir þessu hjá mér núna.
Litla kleinan mín er farin að verða svaka góð í að sækja og skila til baka. Hún verður bara að læra að hætta að heilsa með munninum það er óþolandi. Hún bítur ekki en setur munninn oft utanum hendina á manni ef hún vil leika að er glöð að sjá mann. Það er ekki gott. Hún er soddann risi að fólk verður bara hrætt við hana.
Ohh hún var svo falleg, langar að vera alveg eins og hún
Nei annars þetta er hún. Þessi mynd er í einni bókinni minni um hana:)

Við erum hörkukellingar :) hahaha.. Svo var ég að spá í að senda henni Ölmu í Nylon eitt stykki mail líka þar sem hún viðrar óstjórnlega heimskulega hugmynd í pistli í fréttablaðinu í dag. Það er eins gott að maður sé bara í hlutastarfi og bara í skólanum einu sinni í viku. Það er nóg að gera að vera eins manns þrýstihópur í dag :)