Mótmælum ástandinu..
Ég missti af mótmælunum um helgina. Bömmer. Fer bara næst með eggjabakka með mér
og lendi í slag við lögguna.
Nei nei ég er ekkert að fara að slást það er ekki mér líkt en aðgerða er þörf það er ekki spurning.
Ástandið í þjóðfélginu er vægast sagt eldfimt enda er komið fram við okkur almúgann af mesta hroka og yfirgangi.
Ef að ég væri ekki að standa mig vel í mínu starfi þá yrði ég rekin. Það sama á að gilda um þetta fólk sem VIÐ réðum til að stjórna þessu landið fyrir okkar hönd. Það á að segja þeim öllum upp með tölu. Þetta fólk er búið að fremja mjög alvarleg afglöpp í starfi, það verður að axla sína ábyrgið. Það er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt.
Ég er hrædd um að þegar öll kurl koma til grafar þá verða það við og okkar afkomendur sem þurfa að axla ábyrgið og borga fyrir óráðssíu síðustu ára. Manni svíður því þetta er sárt.
Ég veit um helling af fólki sem er búið eða er að missa vinnuna. Það á bara eftir að fjölga í þessum hópi. Útlitið er svart í mörgum stéttum.
Í fyrsta skiptið á minni ævi er ég alvarlega að pæla í því hvort að mín framtíð sé hérna á Íslandi. Minn draumur er ósköp einfaldur mig langar að eignast börn, geta búið þeim öruggt og gott líf, mig langar að ferðast og mig langar að búa við öryggi. Er það hægt á Íslandi framtíðarinnar?
Ég veit það ekki.
Ég er eitthvað voða svartsýn þessa dagana. Mikið vona ég að það fari að rætast úr þessu öllu saman.
Ég var ósköp slöpp alla helgina var reyndar búin að vera með einhver ónot á fimmtudaginn og föstdaginn. Ákvað nú samt að láta það ekki stoppa mig og fór með Kötlu brjálæðing í langan göngutúr við Kleyfarvatn, það var voða næs hún elskar að geta hlaupið eins og píla út um allt. Hún er reyndar farin að fá mikinn áhuga fyrir bílum og á það til að taka sprettinn á eftir þeim, ekki gott ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að koma í veg fyrir þetta. Ætli ég geti ekki farið með hana í dáleiðslu?
Já, burtu með þetta liðÞað á að slá skjaldborg utan um alþingishúsið á miðvikudaginn klukkan 12. Ertu ekki game? Getur skroppið í matartímanum þínum :)

Bara vera BJARTSÝN!! :-D
Knús á þig!!