Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Stærsta stund lífs míns var þegar ég fæddist

10. desember 2008 klukkan 15:46
 

Jólin eru svo að koma og ég er nákvæmlega ekkert tilbúin. Þetta verða mjög skrítin jól í ár. Ég fer ekki heim það er klárt. Það er bara svo dýrt og ég þyrfti líka að fara á aðfangadag því ég þarf að vinna á Þorláksmessu. Ég fékk næstum hjartastopp þegar Gulli spurði hvort við ættum ekki að hafa dúfur eða eitthvað framandi á jólunum uhhhh NEI ég vil allt eins og mamma gerir ekki breyta neinu takk pent úff þetta verður eitthvað púsl. En ég er öll að vera með opin huga og prufa eitthvað nýtt. Já og ég er að hugsa um að hafa Þorláksmessu kaffi jei eru ekki allir til í að kíkjaLaughing

 

Síðasta helgi var mjög skemmtileg. Ég og Júlía héngum heima á spjallinu til kl 6 á laugardagsmorgun just like olde times. Við duttum alveg á hvað er ég að gera í lífinu planið en það má alveg velta sér uppúr því stöku sinnum. Júlía ég panta svona kvöld aftur fljótlega.
Á Laugardagskvöldið þá fórum við í partí til Hlyns og skelltum okkur svo á tónleika með Baggalút, elska Baggalút!  Það er alveg merkilegt hvað maður getur gert mikinn óskunda undir áhrifum áfengis. Ég fór örlítið yfir strikið verð að fara að hugsa minn gang sko eða að ég tek þetta bara á æðruleysinu og hugga mig við það að ég er alltaf svo stillt að mér fyrirgefst smá egó flipp og kjaftríf (jeb þetta er orð).

 

Sonja og Lalli verða í bænum þessa helgi og  við erum að fara út að borða á Vox á sunnudagsmorgun mjög spennt vona að brunchinn verði með jólaívavi.

Ég er í jólagjafastresskasti ég er nokkuð klár hvað ég ætla að gefa öllum (þarf bara að fjármagna það) nema Gulla ég stend á gati ég er með eitt í huga en þori varla að gefa honum það, er að hugsa um að bjalla í nokkrar vinkonur og ræða þetta fá álit og sonna.

 

Ég er svo að skrifa þetta blogg undir pressu frá Írisi og Júlíu. Ull á ykkur vitiði ekki að ég á að vera að vinna ha ha love jú girls

 

Partíkexið mitt á afmæli í dag: Til hamingju með afmælið elsku besta Ragga mín þú ert draumur í mjög fallegri dós. Er það ekki afmælisdjamm 19 des júhú???

 

Eitt en ég er öll glöð með öll kommentin frá öllum takk sérstaklega mamma!


Ég er farin að borða svo mikið nammi að ég er hrædd um að enda svona.

Aumingja Gulli

Ég þoli ekki að fá sms þar sem stendur

04. desember 2008 klukkan 11:49
 

Ég ætla að taka gelgjuna á þetta og heimta stappandi í gólfið og berjandi í veggi komment frá þeim sem lesa þetta blogg, Já ég veit en mér líður eins og ég sé að fá verlaun með kommentum og það er gaman!

 

Davíð a.k.a the king er þögull sem gröfin, vil ekki segja okkur afhverju við erum hryðjuverkamenn Eins og það komi okkur ekki baun við. Hana er nú eitthvað að tapa sér held ég eða hugsanlega löngu búin að því. Geir er samt enn skotin í honum og er allur tilbúin að taka slaginn við þjóðina um Davíð.
Sambýlismaðurinn er Davíðs karl ég veit, ég veit en hann hefur margt til brunns að bera sem vegur þennan augljósa karaktergalla upp. Ég er að vinna í að snúa honum frá villu síns vegar, með staðfestu og dugnaði er það hægt ég trúi því ég bara verð að gera það...

 

Sonja kom með litla engilin hana Esju Báru til okkar í gær hún er bara sætust sko. Alltaf að verða stærri og stærri og sætari og sætari. Úff manni langar bara að eiga hanaSmile

 

Ég er í "mig langar í og ég vil" leik við sjálfa mig, merkilegt hvað sá leikur breytist fljótt í "mig vantar/langar svo mikið í  að það er komið útí þráhyggju" leik.


Ég þarf samt meik og maskara, það er að vanta. Ekki get ég verið án þess er það??


Mig langar í föt föt föt og aftur föt ég vil búa í landi þar sem flott föt vaxa á trjánum. Vó hvað það væri


Mig langar í bæli fyrir Kötlu svo ég geti vanið hana af búrinu (helvítis huges búr sem tekur allt plássið)


Mig langar í skó og stígvél líka.


Mig langar heim (heim er Breiðdalsvík alltaf Breiðdalsvík)


Mig langar að vera búin að jólakaupa og svona en ég er ekki byrjuð og alveg óvíst hvenær ég byrja.


Mig langar að lesa fullt fullt af bókum.


Mig langar að vera ekki að missa mynnið, já í alvöru það er að gerast og ég er ó svo skelkuð. Ég var víst á hálftíma fundi í gær sem mig rámar ekkert í og man ekkert þá meina ég ekkert eftir að hafa farið á. Samt fór ég víst burt í hálftíma. Sá mig einhver í gær??


Mig langar að hafa allan tíman í heiminum.


Mig langar að vera ekki alltaf svona pirruð aumingja Gulli (hann er samt oft pirraður líka sko) Heimilislífið er ekki mjög ánægjulegt þegar við erum bæði óþolandi.


Mig langar að kenna Kötlu minni fína dömu hundasiði (hún lærir þá samt vonandi fljótlega)


Mig langar svo svo mikið í helling af hlutum. Ætli það sé til í útlandinu ég vil hugsanlega flytja til útlanda í alvörunni.


Mig langar svo ekki að það kosti 15 þús að bregða sér í Bónus að kaupa eingöngu það sem þarf!!!


Mig langar að baka, hver er með mér í að beita Gulla hópþrýstingi um að ná í hrærivélina sína svo ég geti bakað.


Mig langar að mótmæla og ætla að gera það!!!!  Ég þoli ekki að fólk virðist vera að hætta því!!!


Ég vil, langar og vantar helling í viðbót en ég fer fljótlega í mat og ætla að eyða honum í ljósum ekki í tölvunni. Krossa putta vona að ég verði brún ekki rauð.


Já mig langar líka óstjórnlega mikið að vita hvort Angelina Joly sé ólétt aftur, veit ekki alveg afhverju mig langar svona að vita það.


Já mig langar líka í bjór já svei mér þá. Ekki samt á 800 fokking krónur, eða humm ég segi að sjálfsögðu ekki nei ef einhver býður.


Já svo væri ég til í alheimsfrið meððí
.

Já stundum er maður bara pirraður

02. desember 2008 klukkan 14:13

 

Það vesta sem maður gerir er að nenna ekki. Ég nenni oft ekki, mér líður aldrei vel með það. Ég er viss um að lífið verði mikið innihaldsríkara og skemmtilegra ef maður bara nennir.

Þegar ég vaknaði í morgun þá var ég með öndina í hálsinum og kvíðahnút í maganum  sem bara fann enga ástæðu fyrir.  Ég var svo viss um að ég væri búin með ástands áhyggjupakkann en nei það var víst bara óskhyggja. Ég hef hroðalega miklar áhyggjur af litla þjóðfélaginu okkar. Mér finnst ég alltaf vera að finna meira og meira fyrir þessu og alltaf að heyra um fólk sem er að fara virkilega illa útúr þess. Það er svo sárt.
Við Gulli vorum að pæla í að ef þetta rúllar allt yfir þá förum við eitthvað á flakk, hugsanlega reyna að fá vinnu á einhverjum skíðahótelum í Austurríki eða eitthvað svoleiðis. Þarf ekki alltaf kokka útum allt. Kokka sem kunna að smíða meira að segja?

 

Við elduðum kalkún um helgina namm það var svo gott. Sammi, Aggi og Röggi komu í mat. Við borðuðum á þeim kristilega tíma kl 12 að miðnætti. Ha ha það var svo fínt. Við erum svo mikið skyndihugdettu fólk hver er líka komin til að segja að einn tími sé betri en annar til að borða.
Sara og Viggó kíktu líka á okkur í smá stund Sara er að fara flytja til Danmerkur 16 des ég er strax farinn að sakna hennar við ætluðum að taka smá skrans saman en við látum það bíða fram á næstu eða þar næstu helgi bara.

 

Vó ok þó ég hljómi eins og þunglyndissjúklingur sem hefur ekki efni á lyfjunum sínum núna þá er þetta bara tímabundið. Ég fæ mér bara bjór þegar ég kem heim þá verður þetta allt í lagi ha ha ha djók.
Þetta veður allt í lagi er það ekki?

 

Ég er orðin fokk þreytt á þessum fréttaskotum stöðvar 2 frá Íbúðarlánasjóði hvernig væri nú að fara á stúfana og ná sér í nýtt myndefni. Já eða bara fara að borga mér fyrir að vera í fréttunum ca 2 í viku. Það er reyndar betri hugmynd. Þrátt fyrir að ég sé illa til höfð og með uppbrett nef. Já ég er enn í sjokki yfir þessu nef máli. Nú er góðærið búið og ekki séns að fá lán fyrir nýju nefiUndecided  Já ég gæti sko sett heimsmet í kvabbi í dag ha ha

Satans flensa

28. nóvember 2008 klukkan 19:09
Ég er búin að ligga eins og skata í flensu ógeði en nú er ég sem betur fer að hressastSmile Katla mín er svo sannarlega búin að njóta góðs af því og er búin að vinna frækin sigur í baráttunni um rúmmið, hún er sem sagt búin að fá að kúra uppí rúmmi hjá mérUndecided. Já gangi mér vel að venja hana af því.....

Síðustu helgi þá fórum við í Sælukot sem er TM bústaðurinn í Húsafelli, það var svo næs elska að vera þarna, það var farið í pottinn, göngutúr, drukkin oggulítill bjór og borðað veislumat því Gulli var í essinu sínu og eldaði sem aldrei fyrr.  Held ég hafi þyngst um ca 3 kg ha ha en það má alveg ég er hvort eð er búin að vera lystarlaus alla vikuna þannig að þetta jafnast út.

Júlía kom í heimsókn í gærkvöldi Katla ætlaði að tapa sér hún var svo glöð að sjá hana, það var bilað fyndið hún hljóp um eins og óð og datt svona 10 sinnum á hausinn en stóð jafn harðan upp og hélt áfram stjórnlausum hlaupum.
Við Júlía áttum svo skemmtilegt spjall það verður gaman að sjá framvindun málaWink

Ég er auðvitað að fara að mótmæla á morgun ættli það verði uppþot, það er stutt í það held ég. Mikið vona ég að ástandið verði ekki eins slæmt og ég held að það verði. Krossa putta og vona það besta. Allir með.







Svona góðar vinkonur erum við Katla.

In the end, we decide if we're remembered for what happened to us or for what we did with it.

18. nóvember 2008 klukkan 14:50

 


Ég fékk mjög skemmtilegt símtal fá elsku bestu vinkonu minni henni Írisi á laugardagsnóttina þar sem hún bað mig afsökunar á að hafa líkt annarri vinkonu sinni við mig. Henni fannst hún pínu vera að halda framhjá mér. Hún er náttúrulega algjör gullmoli þessi elska. Ég er svo heppin með vinkonur mínarLaughing

 

Það er jólahlaðborð í vinnunni eftir 2 vikur. Mikið langar mig í nýjan kjól og skó fyrir það ef ég fer. Langar svo að vera jóla fín með smá glimmeri ekki mikið það verður að bíða til áramóta þá má helling af því. Jei það er svo gaman. Ég ætla að fara að skoða í kringunni í vikunni tékka hvort ég sjá ekki eitthvað fallegt.
Ég ætlaði að fara að G-star útsöluna í gær en þá var búið að loka, það seldist allt svo vel hjá þeim. Bömmer fyrir mig, ekki það að mig vanti nokkurn skapaðan hlut en manni langar samt alltaf í eitthvað. Ég mæti bara gallvösk á næstu útsölu.

 

Ég er að hugsa um að skella mér í bústað í Húsafell um helgina. Langar einhvern að koma með í ævintýraferð og slökunn?
Verð nú að viðurkenna að ég er með smá móral yfir að fara ekki að mótmæla en það verður að hafa það. Ég verð bara með þeim mun meiri læti næst er það ekki máli? Ég fór að mótmæla síðustu helgi með litla ólaátabelginn minn með mér. Hún hitti Samma frænda í fyrsta skiptið og hún varð öll skotin í honum. Ekki skrítið reyndarSmile
Þetta var samt heldur langur tími fyrir hana til að vera úti í kuldanum því hún varð lasinn eftir þetta allt saman. Ég vissi alls ekki að hundar fengju flensu (já ég veit, ég er hin fullkomni hundaeigandi) en hún varð voða slöpp og er enn, sefur bara og sefur.  Ég sem er algjör nagli í þessu hundauppeldi er búin að vara svo lin við hana, dekra svoleiðis við hana. Það má þegar hún er lasinn..

Mitt uppáhalds ljóð...

14. nóvember 2008 klukkan 23:13

Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.


Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.


Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.


Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.

eftir Kristján frá Djúpalæk

Þetta er uppáhalds ljóðið mitt. Var bara að hugsa um það og ákvað að pósta því hérna inn fyrir ykkur.
Man þegar ég las það fyrst, þá var ég í Grunnskólanum í Staðarborg.

Ég er alltaf sofnadi þessa dagana. Mjög undarlegt, mér hefur nú hingað til ekki fundist það mjög spennandi iðja. Skil þetta ekki alveg, líklega hefur þetta eðlilegar skýringar.

Stefnan er þó að rífa sig upp á morgun og fara að mótmæla, svo langar mig nú pínu að skella mér á eitthvað skrall, sjáum til hvernig stemninginn verður:)

Ég tók þá stóru ákvörðun í dag að bæta loksins Hjelm við nafnið mitt. Við mamma erum búnar að vera að gæla við þetta í mörg ár og nú er komið að því. Hvernig hljómar Aðalbjörg Eva Sigurðardótti Hjelm í ykkar eyrum??

Hvað gerum við núna??

12. nóvember 2008 klukkan 13:35
 

Nú er það svart. IMF er búið að setja okkur á hold og við fáum ekki lán annarsstaðar nema við fáum lánið frá þeim. Er þetta ekki hin sannkallaða patt staða (lærði sko svona skák mál þegar ég var í skák kennslunni hérna í denn, Unnur kann þetta líka)
Við sitjum uppi með mjög slappa stjórn sem virðist ekki vita neitt í sinn haus um gang mála né hvað skal til bragðs taka. Við kusum þetta fólk við eigum að geta rekið það líka og það skal takast.
Merkilegt að það koma upp ný spillingarmál á hverjum einasta degi og stjórnin segir ekki neitt. Hendir bara fram skítakommentum um skrílslæti til að við eyðum okkar tíma í að gagnrýna orð þeirra en ekki gjörðir eða réttara sagt aðgerðaleysi.
Ég er búin að senda öllum í stjórnarflokkunum meil þar sem ég krefst þess að þau segi af sér, hef ekki fengið eitt einasta svar. Frá mínu eigin starfsfólki!  Þau eru jú í vinnu hjá mér og okkur öllum. Samt sýna þau fádæma mikinn hroka að láta eins og þessi kreppa sé þeirra einkamál og okkur komi þetta nú lítið við. Við séum bara með bölvaða frekju að heimta upplýsinga og svör um hvað sé í spilunum að gera í þessu.
Mér finnst eins og við séum stödd í einhverjum hvirfilbil sem rífur allt með sér sem er ekki kirfilega niður neglt. Hvar við endum er algjörlega óráðið..

 

Eníveijs  ég er tiltölulega spræk. Er eins og flestir vita á smá krossgötum en ég er ekki mikið að stressa mig þessa dagana. Þetta kemur allt, það er líka svo mikið að gera við að fylgjast við kreppumálum að það kemst lítið annað að.  Ég er reyndar svo sjúklega utan við mig og gleyminn að það nær ekki nokkurri átt. Eftir sturtu í gær þá var ég að setja kremin mín á mig og mér tókst að setja andlitskremið í hárið á mér og hárkremið í andlitið á mér voða huggó með fitugt hár og logsveið í andlitð. Úff það er allt eftir þessu hjá mér núna.

Litla kleinan mín er farin að verða svaka góð í að sækja og skila til baka. Hún verður bara að læra að hætta að heilsa með munninum það er óþolandi. Hún bítur ekki en setur munninn oft utanum hendina á manni ef hún vil leika að er glöð að sjá mann. Það er ekki gott. Hún er soddann risi að fólk verður bara hrætt við hana.




Ohh hún var svo falleg, langar að vera alveg eins og húnKiss

Mótmælum ástandinu..

10. nóvember 2008 klukkan 11:20
 

Ég missti af mótmælunum um helgina. Bömmer. Fer bara næst með eggjabakka með mérYell og lendi í slag við lögguna.
Nei nei ég er ekkert að fara að slást það er ekki mér líkt en aðgerða er þörf það er ekki spurning.
Ástandið í þjóðfélginu er vægast sagt eldfimt enda er komið fram við okkur almúgann af mesta hroka og yfirgangi.
Ef að ég væri ekki að standa mig vel í mínu starfi þá yrði ég rekin. Það sama á að gilda um þetta fólk sem VIÐ réðum til að stjórna þessu landið fyrir okkar hönd. Það á að segja þeim öllum upp með tölu. Þetta fólk er búið að fremja mjög alvarleg afglöpp í starfi, það verður að axla sína ábyrgið. Það er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt.
Ég er hrædd um að þegar öll kurl koma til grafar þá verða það við og okkar afkomendur sem þurfa að axla ábyrgið og borga fyrir óráðssíu síðustu ára. Manni svíður því þetta er sárt.
Ég veit um helling af fólki sem er búið eða er að missa vinnuna. Það á bara eftir að fjölga í þessum hópi. Útlitið er svart í mörgum stéttum.
Í fyrsta skiptið á minni ævi er ég alvarlega að pæla í því hvort að mín framtíð sé hérna á Íslandi. Minn draumur er ósköp einfaldur mig langar að eignast börn, geta búið þeim öruggt og gott líf, mig langar að ferðast og mig langar að búa við öryggi. Er það hægt á Íslandi framtíðarinnar?
Ég veit það ekki.

 

Ég er eitthvað voða svartsýn þessa dagana. Mikið vona ég að það fari að rætast úr þessu öllu saman.

 

Ég var ósköp slöpp alla helgina var reyndar búin að vera með einhver ónot á fimmtudaginn og föstdaginn. Ákvað nú samt að láta það ekki stoppa mig og fór með Kötlu brjálæðing í langan göngutúr við Kleyfarvatn, það var voða næs hún elskar að geta hlaupið eins og píla út um allt. Hún er reyndar farin að fá mikinn áhuga fyrir bílum og á það til að taka sprettinn á eftir þeim, ekki gott ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að koma í veg fyrir þetta. Ætli ég geti ekki farið með hana í dáleiðslu?

Ekki krepputal í dag:)

06. nóvember 2008 klukkan 16:11
 

Eg vakna þennan morgun og vel að hann se goður

Vel að hann se yndislegur, myrkur og hljóður

Eg vel að kúra um stund og staðnæmast við það.

Hve storkostlegt sé lífið ef fátt amar að

 

Eg ákveð því  að velja að vandamalin fá

Vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá

tilverunni ennþá  fleiri tilbrigði og fleti

eg tek þeim opnum örmum svo nytt merþau ég geti.

 

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur

Faðma þennan morgun og alIar hans rætur

Hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt

Kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.

 

Að endingu ég segi við  þig sem þetta lest

Þetta er góður dagur,hafðu það sem best

Ég  óska þess að hugsanir falIegar þig finni

Eg faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.

höf.ókunnur


Jóna mín sendi mér þetta í dag. Mér finnst þetta voða fallegt.

Hvernig væri nú að fara að gera eitthvað?

04. nóvember 2008 klukkan 15:50
 

Áðan þegar ég var sem oftar að hanga á facebook á fékk ég einhverja tilkynningu um að það væru 2 sem vildu giftast mér og 1 sem hatar mig.
Ég var ekki að spyrja en takk fyrir þetta og hver í andskotanum hatar mig og gefur sér tíma til að skrásetja það??

 

Það er bylting í uppsiglingu sendið póst á byltig@yahoo.is og verið með.
Hingað og ekki lengra gott fólk við látum ekki taka okkur ítrekað í rassgatið steinþegjandi og hljóðalaust.  Nú er komin tími til aðgerða. Það er ekki réttlátt að sumir fái skuldirnar sínar afskrifaðar en ekki allir. Það á eitt yfir alla að ganga.

Djöfull er ég reið!

 

Ég er að fara í litun á morgun vei ég er spennt, hef ekki mikla hugmynd um hvað ég vil en það er svo sem ekkert nýtt. Trúlega verður það einhver útgáfa að ljósu, ljóskan sem ég er nú.


Ég er með þetta lag á heilanum núna, ákvað að bæta því við:)



Money Money Money

I work all night, I work all day, to pay the bills I have to pay
Ain't it sad
And still there never seems to be a single penny left for me
That's too bad
In my dreams I have a plan
If I got me a wealthy man
I wouldn't have to work at all, I'd fool around and have a ball...

Money, money, money
Must be funny
In the rich man's world
Money, money, money
Always sunny
In the rich man's world
Aha-ahaaa
All the things I could do
If I had a little money
It's a rich man's world

A man like that is hard to find but I can't get him off my mind
Ain't it sad
And if he happens to be free I bet he wouldn't fancy me
That's too bad
So I must leave, I'll have to go
To Las Vegas or Monaco
And win a fortune in a game, my life will never be the same...

Money, money, money
Must be funny
In the rich man's world
Money, money, money
Always sunny
In the rich man's world
Aha-ahaaa
All the things I could do
If I had a little money
It's a rich man's world

Money, money, money
Must be funny
In the rich man's world
Money, money, money
Always sunny
In the rich man's world
Aha-ahaaa
All the things I could do
If I had a little money
It's a rich man's world

It's a rich man's world

Já Abba stendur alltaf fyrir sínu




Prófíll

  • Nafn: Aðalbjörg Eva Sigurðardóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Móttökuritari hjá TM
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: Ég er á fullu í að reyna að fynna útúr þessu. Hef skemmt mér vel í þessari leit minni hingað til. Vona að mér hlotnist gæfa til að fynna lausnina:)
  • Annað: Það er ekki slæmt að vera búin að fynna Gullið sitt.

Könnun

Er allt að fara til fjandans?

Klukkan